Þetta var í þá daga þegar vetrarhimininn var stjörnubjartur, norðurljósin dönsuðu á tilkomumikilli himinhvelfingunni og fannfergið meira en í manna minnum, löngu fyrir síðustu aldamót. Froststillur höfðu verið einkennandi fyrir febrúarmánuð þetta árið.